Öll lífsform hafa áru.
Áran er sá þáttur sem umlykur líkama mannsins og samanstendur af sjö orkusviðum sem hvert hefur sína tíðni og lit.
Dulspeki spannar yfir vítt svið þekkingar um andleg málefni af ólíkum uppruna.
Þar koma við sögu þekkingaratriði á andlegu atgerfi mannsins, sótt bæði í meðvitund og undirmeðvitund.
Uppruni dulspeki er frá fornum menningarsamfélögum bæði þekktum og óþekktum.
Dulspekingur er einstaklingur með yfirgripsmikla þekkingu á andlegum málefnum.
Nánar um dulspeki Dulspekingar
Spámiðlun er aðferð þar sem miðillinn fjallar um fortíð, nútíð og framtíð viðkomandi einstaklings.
Aðferðir við spámiðlun eru fjölbreyttar. T.d. spil, bolli, telauf, bein miðlun o.sv.fr.
Spáspeki er sá hæfileiki einstaklings að geta sagt fyrir um fortíð og framtíð, yfirleitt með aðstoð hjálpartækja (t.d. spil, kaffibolli, rúnir og fl.).
Nánar um spáspeki Þjónustuaðilar
Stjörnufræði tekur til rannsókna á reikistjörnum, plánetum, vetrarbrautum og öðrum gerðum efnis og orku í alheiminum. Stjörnufræði þróaðist fyrst meðal fornra menningarþjóða eins og Egypta, Maya og Kínverja.
Í fyrstu var stjörnufræðin einvörðungu hagnýt og notuð til þess að tímasetja viðburði, búa til tímatal og til þess að rata um ókunn svæði. En í dag fæst stjörnufræðin við flókin viðfangsefni eins og tilurð alheimsins, hugsanlegt form hans, framtíð osv.frv.
Nánar um Stjörnufræði Stjörnufræðingar
Stjörnuspeki byggist á öðru en stjörnufræði.
Hjá fornum menningarþjóðum t.d. Kaldeum, Indverjum, Kínverjum og Egyptum skipaði stjörnuspeki háan sess á öllum sviðum menningar þeirra.
Stjörnuspeki var í hávegum höfð í Evrópu og kennd í háskólum á miðöldum.
Nánar um Stjörnuspeki Stjörnuspekingar
Talnaspeki er ævaforn.
Talið er að Gríski heimspekingurinn Aristóteles hafi fundið tíðnigildi tölustafa og bókstafa sem úr varð fræðigreinin talnaspeki.
Talnaspeki er náskyld stjörnuspeki og hinni heilögu Geometríu.
Nánar um Talnaspeki Talnaspekingar
Transmiðlun er aðferð til að veita upplýsingar frá andlegum sviðum með því að viðkomandi fari í trans. (trans medium)
Transmiðillinn leyfir öðrum aðila að nota líkama sinn, undir eftirliti stjórnanda, til þess að miðla upplýsingum frá andlegum sviðum.
Nánar um Transmiðlun Transmiðlar
Viskumiðlun er uppspretta þekkingar, aðferð til að miðla fræðslu og visku.
Þannig er hægt að fá svör og skýringar á dýpri rökum tilverunnar.
Nánar um Viskumiðlun Viskumiðlar
Vökumiðlun er aðferð til að veita upplýsingar frá andlegum sviðum án þess að viðkomandi fari í trans. (talking medium)
Nánar um Vökumiðlun Vökumiðlar